Þú ert fyrirmynd hvort sem þú vilt það eða ekki

Þjálfun sem passar inn í annasamt fjölskyldulíf, byggð til að þú endist.

Ég heiti Aron Ingi

Ég er tveggja barna faðir og Mosfellingur í húð og hár.

Ég sérhæfi mig í einkaþjálfun og fjarþjálfun fyrir bæði byrjendur og lengra komna.

Markmiðið er einfaldlega að koma þér í þitt besta form eða styrkjast svo þú getir verið fyrirmynd fyrir þá sem skipta þér mestu máli.

Einkaþjálfari & pabbi

Þetta er auðveldara en þú heldur.

Prógram sem hentar þér og þínu lífi.

  1. Við byrjum á stöðunni þinni

    Spjöllum saman um markmiðin þín, meiðsli og daglega rútinu.

  2. Þú færð prógram sem passar lífinu

    Sérsniðið eftir markmiðum þínum, búnaðinum sem þú hefur og þeim tíma sem þú átt í raun. Byggt til að halda þegar vikan fer úr skorðum.

  3. Við aðlögum eftir því sem þú styrkist

    Vikulegt check-in og bein skilaboð til mín þess á milli. Þú segir mér hvernig gengur og ég stilli af. Framvinda, ekki stöðnun.

Því þú ert fyrirmyndin — hvort sem þú vilt það eða ekki

  • Orka til að vera til staðar eftir langan dag.
  • Bak og hné sem þola að lyfta, bera og elta.
  • Hreyfing verður sjálfsagður hluti af lífi barna þinna.
  • Hraustur pabbi núna, ekki seinna.

Þrjár leiðir. Eitt markmið.

Pakkar sem henta fyrir alla, byrjendur og lengra komna. Finnum það sem passar best við þig.

Innri hringurinn

Sterkari á þínum eigin tíma

9.900 kr/mán

Engir fastir tímar. Engin pressa. Þú stjórnar ferðinni. Áskrift í innri hring Sterka pabba þar sem þú færð æfingaprógram og næringargildi

  • Æfingaprógram eftir þínum markmiðum
  • Næringar gildi - Kcal, protein, kolvetni og fitu magn sem er hægt að miða við
  • Aðgangur að Sterka pabba gervigreind sem hjálpar við einfaldar fyrirspurnir
  • Aðgangur að Facebook hóp Sterka pabba
  • 30 daga áskriftar leyfi
Senda fyrirspurn

1:1 Einkaþálfun

74.900 kr/mán

Sérniðið matar- og æfingarprógram eftir þínum markmiðum og 1:1 þjálfun í sal til koma þér almennilega í gang.

  • 1:1 einkaþjálfun í sal (einungis Katla Fitness)
  • Sérsniðið æfingar prógram
  • Sérsniðið matarprógram
  • Bein skilaboð til mín 24/7
  • Vikulegt stöðumat
  • Aðgangur að þjálfunar appi í síma sem heldur utan um öll gögn
Senda fyrirspurn

Sterkari pabbi prógramið - Fjarþjálfun

29.900 kr/mán

Þú færð sérsniðið matar- og æfingaprógram eftir þínum markmiðum.

  • Sérsniðið æfingaprógram í appi
  • Sérsniðið matarprógram
  • Bein skilaboð til mín
  • Vikulegt check-in
  • Aðgangur að þjálfunar appi í síma sem heldur utan um öll gögn
Senda fyrirspurn

Ef maður spyr ekki þá veit maður ekki

Ég hef varla æft í mörg ár — er þetta fyrir mig?

Já, einmitt þá. Flestir sem byrja hjá mér hafa ekki æft reglulega í langan tíma. Við byrjum þar sem þú ert og byggjum upp hægt og örugglega. Engin þörf á að vera í formi fyrir fram.

Hvað þarf ég að hafa mikinn tíma?

Prógrammið er byggt í kringum þann tíma sem þú átt í raun og veru. Við förum yfir vikuna þína eftir gott spjall og sníðum æfingarnar að henni — ekki öfugt.

Þarf ég að vera með aðgang að líkamsræktarstöð?

Ég mæli alltaf með því en það þarf alls ekki. Ég byggi prógrammið í kringum þann búnað sem þú hefur, hvort sem það er í líkamsrækt, lítið heimatæki eða bara líkamsþyngd og teygjur.

Hver er munurinn á prógrömmunum þremur?

Sterkari á þínum eigin tíma er áskriftar aðgangur fyrir innri hringinn á heimasíðu, þar færð þú æfingar prógram og næringargildis viðmið og aðgang að sterkir pabba gervigreind. Í æfinga- og matarprógrammi færðu sérsniðið matarprógram og æfingar prógram. Í 1:1 einkaþjálfun færðu það sama og fjarþjálfun og einkaþjálfun með mér út á gólfi í tækjasal þar sem við förum vel yfir allar æfingar og pössum að við séum að gera allt rétt. í fjár og einkaþjálfun er vikuleg stöðumat hjá þjálfara.

Býðurðu upp á einkaþjálfun?

Já. Ég sérhæfi mig í bæði einkaþjálfun og fjarþjálfun, fyrir byrjendur og lengra komna. Tökum spjallið og við finnum út hvað hentar þér best.

Hvað kostar þetta?

Sterkari á þínum eigin tíma áskrift 9.900 kr á mánuði. Fjarþjálfun 24.900 kr á mánuði. 1:1 þjálfun 74.900kr á mánuði.

Byrjum á spjalli — það kostar ekkert

Létt spjall, engin skuldbinding. Við förum yfir hvar þú ert og hvert þú vilt fara.