Fara í meginmál
Sterkir pabbar
AðferðPakkarSpurningar
Skrá innÓkeypis spjallSpjall
AðferðPakkarSpurningarSkrá innÓkeypis spjall

Persónuvernd

Síðast uppfært 11. október 2026

Hver ber ábyrgð

Sterkir pabbar (Aron Ingi) ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á sterkirpabbar.is og í appinu á app.sterkirpabbar.is. Spurningar og beiðnir sendast á Info@sterkirpabbar.is.

Google Analytics

Við notum Google Analytics á vefnum og í appinu til að sjá hversu margir koma, hvaðan þeir koma og hvaða síður þeir skoða. Vafrakökur frá Google eru aðeins settar ef þú samþykkir þær. Ef þú hafnar sendir síðan Google aðeins nafnlaus merki án vafrakaka, sem ekki er hægt að tengja við þig.

Appið — Innri hringurinn

Þegar þú stofnar aðgang og notar appið geymum við:

  • Aðgang: netfang og innskráningarupplýsingar.
  • Svör við spurningalistanum: markmið, fjölda æfingadaga, reynslu, þyngd, hæð, aldur, kyn, daglega hreyfingu og staðfestingu á að þú sért 18 ára eða eldri.
  • Heilsufarsupplýsingar: hvort þú hafir langvinnan sjúkdóm, takir lyf, eigir sögu um átröskun eða sért með meiðsli, og það sem þú skrifar sjálfur um hvað takmarkar þig.
  • Það sem appið reiknar: næringarviðmiðin þín og æfingaplanið.
  • Greiðsluupplýsingar: fullt nafn, kennitölu, símanúmer ef þú gefur það upp, hvenær krafa var send og greidd, og til hvaða dags aðgangurinn er greiddur.
  • Gervigreindaraðstoðin: samtölin sjálf eru ekki geymd. Við skráum aðeins hvenær spurt var, hversu langt svarið var og hvort það tókst, til að halda utan um kostnað og daglegt hámark.

Til hvers

  • Að reikna næringarviðmið og velja æfingaplan sem passar þér.
  • Að Aron geti séð hvort eitthvað í heilsufari þínu kalli á að hann fari yfir planið með þér.
  • Að stofna kröfu í heimabankann þinn og opna aðganginn þegar hún er greidd.
  • Að gervigreindaraðstoðin geti svarað spurningum um planið þitt og viðmiðin.

Aron er sá eini sem sér upplýsingarnar þínar. Þær eru aldrei seldar né notaðar í auglýsingar.

Á hvaða grundvelli

  • Aðgangur, plan og greiðslur eru nauðsynleg til að veita þjónustuna sem þú skráðir þig í.
  • Heilsufarsupplýsingar eru viðkvæmar persónuupplýsingar. Við vinnum aðeins með þær á grundvelli samþykkis þíns, sem þú getur dregið til baka hvenær sem er með því að biðja um að aðgangi þínum sé eytt.
  • Google Analytics er aðeins notað með samþykki þínu.

Hverjir vinna úr gögnunum

Við notum þessa þjónustuaðila. Þeir vinna aðeins úr gögnunum fyrir okkar hönd:

  • Clerk sér um innskráningu og geymir netfangið þitt.
  • Neon hýsir gagnagrunninn með svörum þínum og viðmiðum.
  • Vercel hýsir vefinn og appið.
  • OpenAI, í gegnum Vercel, svarar spurningum í gervigreindaraðstoðinni. Þegar þú spyrð fær það spurninguna og, ef við á, planið þitt og næringarviðmiðin.
  • Google rekur Google Analytics, ef þú samþykkir það.

Þessir aðilar eru í Bandaríkjunum. Flutningur gagna þangað byggir á rammasamningi ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd (EU–US Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.

Hversu lengi

Við geymum upplýsingarnar á meðan þú ert með aðgang. Þegar aðgangi er eytt eyðast öll gögn þín úr appinu. Bókhaldsgögn um greiddar kröfur eru geymd í sjö ár eins og lög um bókhald krefjast. Google geymir gögn úr Google Analytics í takmarkaðan tíma, að hámarki 14 mánuði.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • fá afrit af upplýsingunum sem við geymum um þig,
  • láta leiðrétta rangar upplýsingar,
  • láta eyða aðgangi þínum og öllum gögnum,
  • fá gögnin þín afhent á tölvutæku formi,
  • draga samþykki þitt til baka.

Sendu póst á Info@sterkirpabbar.is og við svörum innan mánaðar. Ef þú ert ósáttur við hvernig farið er með upplýsingarnar þínar geturðu kvartað til Persónuverndar.

Sterkir pabbar

Verðum sterkari saman..

Efni

AðferðPakkarSpurningar

Hafa samband

Info@sterkirpabbar.is
InstagramFacebook
© 2026 Sterkir pabbarÞjálfun um allt landPersónuverndBúið til af einargudni.com

Við notum Google Analytics til að sjá hvernig síðan er notuð. Vafrakökur eru aðeins settar ef þú samþykkir. Nánar